Starfsferill

2017-             Anny, sjálfstæð innflutningsstarfsemi

2015 –            Samtök um Betri spítala á betri stað, framkvæmdastjóri, ólaunað áhugastarf

Óformlegt félags fólks sem telur að gera eigi faglega staðarvalsgreiningu fyrir nýja Landspítalann.  Samtökin hafa greint mikinn fjárhagslegan ábata af því að byggja nýja spítalann á betri stað og telja að Hringbraut henti ekki fyrir framtíðar spítalann.   Við höldum úti heimasíðu www.betrispitali.is og vinsælli facebook síðu https://www.facebook.com/betrilandspitaliabetristad/.  Við höfum kynnt okkar rökin viða og meðal annars komið fram í Kastljósi.  Meira um baráttuna undir  http://betrispitali.is/bladagreinar/video/.

2000 – 2015  Tanni auglýsingavörur, framkvæmdastjóri

Innflutningur, framleiðsla, merking á auglýsingavöru ýmis konar, aðallega létts vinnufatnaðar. Vörurnar voru yfirleitt merktar með vörumerkjum að óskum viðskiptavina.  Tanni var 10-12 manna fyrirtæki með veltu um 150 m.kr. auk vsk, í aðaleigu okkar hjónanna, sjá www.tanni.is  Starfsemi Tanna var seld í lok ágúst 2014 til Margt smátt.

1997 – 2000  Verkfræðistofan VISTA ehf., fjármála- og markaðsstjóri 

Helsta verkefni stofunnar er þróun tölvuvædds fjargæslu- og mælingakerfis.  Vista þjónustar meðal annars Vegagerðina og Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar varðandi sjálfvirkar veðurstöðvar, eftirlitskerfi dælustöðva o.fl.

1988 – 1997   Rafmagnsveita Reykjavíkur (nú OR), fjármálastjóri

RR var á þessum tíma um 235 manna fyrirtæki með rúmlega fjögurra milljarðar króna veltu þá. Til fjármálasviðs heyrði fjármálastjórnun, útgáfa og innheimta rafmagnsreikninga, tölvumál o.fl. RR var sjálfstætt fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar sem sá um dreifingu rafmagns á höfuðborgarsvæðinu, starfsemi sem nú tilheyrir Orkuveitu Reykjavíkur.

1982 – 1988  Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar (nú Velferðarsvið), yfirmaður fjármála- og rekstrardeildar 

Meðal verkefna Velferðarsviðs er fjárhagsaðstoð, félagsleg ráðgjöf, heimaþjónusta við aldraða og öryrkja, rekstur vistheimila, hjúkrunarheimila og fleira. Starfsmenn voru um 1200 að meðtöldum starfsmönnum í hlutastarfi við heimaþjónustu. Starfið fólst í gerð fjárhagsáætlunar og eftirfylgni innan ársins, yfirumsjón tölvumála, yfirumsjón með rekstri á vegum stofnunarinnar o.fl.

1991 – 1992    Menntaskólinn í Reykjavík, stundakennari í rekstrarhagfræði og bókfærslu.

1989-1990  Tölvuskóli Reykjavíkur, stundakennari í lestri og túlkun ársreikninga og notkun bókhalds sem stjórntækis.